Næringarrikt nammi - rafbók
22 uppskriftir af næringarríku konfekti, smákökum og ís.
Næringarríkt nammi er rafræn bók sem inniheldur 22 uppskriftir af næringarríkum konfektmolum, smákökum og ís. Allar uppskriftirnar eru einfaldar í framkvæmd. Þær eru allar mjólkurlausar og glúteinlausar.
Þetta eru uppskriftirnar sem við höfum verið að búa til á nammi námskeiðunum í haust og miklu meira til.
Það er von mín að þessi bók hjálpi þér í eldhúsinu og einfaldi þér að tileinka þér næringarríkari lífstíl.
Kennari
Oddrún Helga Símonardóttir er INN heilsumarkþjálfi og hefur haldið matreiðslunámskeið í rúm 5 ár.
Ég hef persónulega reynslu af mataróþoli og veit hversu leiðinlegt það er að geta ekki nýtt sér megnið af þeim uppskriftum sem er verið að pósta hægri vinstri. Hinsvegar er hreinn matur sko alls ekki verri á bragðið - bara betri og þegar maður tekur með í reikninginn hversu vel manni líður af honum er þetta ekki spurning :)